„Þar sem augnablikið mætir eilífðinni.“

Brúðkaup, meðganga, nýburar, fermingar og fjölskyldur – öll stóru augnablikin, fönguð af hlýju og fagmennsku.

  • brúðkaupsmyndataka

    Brúðkaupsmyndataka

    Brúðkaupsdagurinn er fullur af stórum og smáum augnablikum. Ég legg áherslu á að fanga daginn eins og hann gerist – bæði það sem þið hafið skipulagt og allt það óvænta sem verður til á leiðinni.

    Einlægar, náttúrulegar og tímalausar brúðkaupsmyndir sem varðveita stemninguna, fólkið og minningarnar frá stóra deginum.

  • meðgöngumyndataka

    Meðgöngumyndataka

    Meðgangan er einstakur tími sem líður allt of hratt. Meðgöngumyndataka er falleg leið til að varðveita þessa stund og minninguna um lífið sem þið eigið von á.

    Í stúdíóinu er rólegt og notalegt umhverfi þar sem við gefum okkur tíma til að skapa persónulegar og fallegar myndir. Úrval af fatnaði fyrir meðgöngumyndatökur er í boði í stúdíóinu.

  • nýburamyndataka

    Nýburamyndataka

    Fyrstu dagarnir með nýja fjölskyldumeðlimnum líða ótrúlega hratt. Litlu fingurnir, svipbrigðin, faðmlögin og tengslin sem verða til eru minningar sem ómetanlegt að eiga.

    Nýburamyndatakan fer fram í rólegu umhverfi þar sem við gefum okkur góðan tíma og látum flæðið ráðast af nýjasta einstaklingnum.

  • Fermingarmyndatka útskriftarmyndataka

    Fermingar/Útskriftarmyndata

    Ferming og útskriftir eru stórir áfangar sem eiga skilið að vera varðveittir. Markmiðið er að skapa fallegar og persónulegar myndir sem endurspegla karakterinn. Hér er upplagt að hafa föt til skiptanna og eitthvað tengt áhugamálum.

    Myndatakan getur farið fram í stúdíói, utandyra eða á öðrum stað sem hentar.

  • stúdíómyndataka

    Stúdíómyndataka

    Í stúdíóinu er hægt að skapa fjölbreyttar og persónulegar myndir, hvort sem um er að ræða myndir af börnum, allri fjölskyldunni eða einstaklingum.

    Stúdíómyndataka hentar vel þegar þið viljið einfaldan og tímalausan bakgrunn þar sem áherslan er á fólkið og persónuleika þess. Hér er upplagt að hafa föt til skiptanna og eitthvað tengt áhugamálum.

  • útimyndataka

    Útimyndataka

    Útimyndataka gefur okkur tækifæri til að nota náttúruna og umhverfið sem hluta af myndunum. Hún hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldur, pör, börn og þá sem vilja frjálslegri og afslappaðri myndatöku.

    Oft verða þetta persónulegustu myndatökurnar, á stað sem þið hafið tengingu við

  • mini myndataka

    Minimyndataka

    Mini myndatökur eru styttri myndatökur sem henta vel þegar hópur vill sameinast um myndatöku, til dæmis fjölskyldur, vinahópar eða mömmuhópar, pabbahópar eða vinnustaðir.

    Hópatilboð eru skipulögð eftir aðstæðum og geta verið góð leið til að fá persónulegar myndir á hagkvæman hátt.

Umsagnir viðskiptavina: