Stúdíómyndataka
Persónulegar myndir í rólegu umhverfi
Stúdíómyndataka gefur okkur tækifæri til að einbeita okkur að því sem skiptir mestu máli – ykkur. Í stúdíóinu er rólegt og notalegt umhverfi þar sem við getum gefið okkur tíma til að skapa fallegar og persónulegar myndir.
Hvort sem um er að ræða barnamyndatöku, fjölskyldumyndatöku, portrettmyndatöku eða myndir af einstaklingi, er hægt að aðlaga myndatökuna að ykkur og því sem þið viljið fá út úr henni.
Myndataka fyrir alla
Það þarf ekki sérstakt tilefni til að fara í stúdíómyndatöku. Kannski langar þig í fallegar portrettmyndir af þér, myndir af börnunum, fjölskyldumyndir eða einfaldlega myndir sem fanga þessa stund í lífinu.
Ég legg áherslu á að myndatakan sé afslöppuð og að öllum líði vel fyrir framan myndavélina – bæði börnum og fullorðnum.
Náttúrulegar og tímalausar myndir
Í stúdíóinu getum við haldið uppsetningunni einfaldri og látið fólkið njóta sín. Ég leiðbeini þegar þess þarf en vil fyrst og fremst ná fram eðlilegum svipbrigðum, tengslum og persónuleika.
Myndirnar eru unnar í náttúrulegum og tímalausum stíl svo þær verði fallegar núna og eftir mörg ár.
Stúdíómyndataka í Kópavogi
DASMyndir er með stúdíó í Kópavogi þar sem boðið er upp á fjölbreyttar stúdíómyndatökur fyrir einstaklinga, pör, börn og fjölskyldur.
Ef þú ert að leita að stúdíómyndatöku í Kópavogi eða á höfuðborgarsvæðinu, hafðu samband og finnum saman þá útfærslu sem hentar þér eða fjölskyldunni þinni best.

