Mini myndatökur

Stutt myndataka, fallegar myndir

Mini myndataka hentar vel þegar þig langar í fallegar og persónulegar myndir en þarft ekki heila myndatöku. Þetta er styttri og einfaldari útfærsla sem hentar vel fyrir börn, einstaklinga, pör eða litlar fjölskyldur.

Mini myndatökur geta einnig verið skemmtilegur kostur þegar boðið er upp á sérstök myndatökutilboð, til dæmis á ákveðnum árstímum eða fyrir ákveðna hópa.

Hentar vel fyrir litlar fjölskyldur og einstaklinga

Styttri myndataka getur verið sérstaklega góð fyrir þau sem vilja fá nokkrar fallegar myndir án þess að verja löngum tíma í myndatöku.

Við getum tekið myndir af börnum, systkinum, pörum, einstaklingum eða lítilli fjölskyldu og lagt áherslu á að myndatakan sé létt og afslöppuð.

Hópatilboð og sérstök mini-tilboð

Mini myndatökur geta verið sérstaklega skemmtilegar sem hópatilboð, þar sem ég set upp sérstakt tilboð út frá ykkar hóp. Hentar einstaklega vel fyrir mömmuhópa, pabbahópa, vinnustaði, vinahópa eða annað.

Fallegar myndir án mikillar fyrirhafnar

Markmiðið er alltaf það sama – að skapa fallegar, náttúrulegar og persónulegar myndir. Þú þarft ekki að kunna að sitja fyrir og myndatakan er skipulögð þannig að hún verði einföld og notaleg.

Ef þú ert að leita að mini myndatöku í Kópavogi eða á höfuðborgarsvæðinu, hafðu samband eða fylgstu með næstu tilboðum hjá DASMyndum.

Previous
Previous

Útimyndatökur

Next
Next

Náttúru- og landslagsmyndir