Útimyndataka

Náttúrulegar myndir í fallegu umhverfi

Útimyndataka er frábær kostur fyrir þau sem vilja frjálslegri og náttúrulegri myndir. Í stað þess að vera bundin við stúdíóið notum við umhverfið í kringum okkur sem hluta af myndunum og leyfum ykkur að vera meira á hreyfingu.

Hvort sem um er að ræða fjölskyldumyndatöku, barnamyndatöku, par, systkini eða portrettmyndatöku finnum við stað sem hentar ykkur og þeim myndum sem þið hafið í huga.

Myndataka sem þarf ekki að vera uppstillt

Þið þurfið ekki að kunna að sitja fyrir. Ég leiðbeini þegar þess þarf en legg fyrst og fremst áherslu á að fanga eðlileg samskipti, hlátur, hreyfingu og tengsl.

Sérstaklega með börnum getur verið gott að leyfa þeim að hreyfa sig og vera þau sjálf. Þannig verða oft til myndir sem eru mun persónulegri en hefðbundnar uppstilltar myndir.

Staðsetningin skiptir máli

Við veljum staðsetningu í samráði við ykkur. Það getur verið falleg náttúra, fjara, skógur, gönguleið eða einfaldlega staður sem hefur sérstaka merkingu fyrir ykkur.

Útimyndataka gefur okkur einnig möguleika á að nýta mismunandi birtu, árstíðir og umhverfi til að skapa fjölbreyttar myndir.

Útimyndataka á höfuðborgarsvæðinu og víðar

Útimyndatökur geta farið fram víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu og einnig annars staðar á Íslandi. Við finnum saman stað sem hentar ykkur, fjölskyldunni og þeirri stemningu sem þið viljið hafa í myndunum.

Markmiðið er að skapa náttúrulegar, einlægar og tímalausar myndir sem minna ykkur á þessa stund og hvernig henni leið.

Ef þið eruð að leita að útimyndatöku á Íslandi, í Kópavogi eða á höfuðborgarsvæðinu, hafið samband og finnum saman rétta staðinn fyrir ykkar myndatöku.

Previous
Previous

Stúdíómyndatökur

Next
Next

Mini myndatökur