Brúðkaupsmyndataka

Brúðkaupsdagurinn er fullur af augnablikum sem þið viljið muna. Sum þeirra eru vandlega skipulögð, önnur verða til alveg óvænt – hláturinn, faðmlögin, tárin, dansinn og öll litlu augnablikin þar á milli, sem þið takið kannski ekki eftir sjálf.

Ég legg áherslu á að fanga daginn eins og hann gerist. Ég vil að myndirnar séu einlægar, náttúrulegar og tímalausar og endurspegli ykkur, fólkið ykkar og stemninguna á brúðkaupsdaginn.

Róleg og persónuleg nálgun

Brúðkaupsdagurinn getur verið annasamur og því skiptir mig máli að myndatakan verði ekki enn eitt atriðið sem þið þurfið að hafa áhyggjur af. Góður undirbúningur fyrir daginn hjálpar mikið og því heyrumst við áður en þið giftið ykkur og förum saman yfir dagskrána og það sem skiptir ykkur máli.

Við skoðum meðal annars hvernig dagurinn er uppbyggður, hvenær hentar best að taka brúðhjónamyndir og hvort það séu einhver sérstök augnablik, fjölskyldumyndir eða annað sem þið viljið sérstaklega hafa í huga.

Markmiðið er einfalt: að þið getið notið dagsins og verið til staðar í augnablikinu, á meðan ég sé um að varðveita minningarnar.

Myndataka frá athöfn til veislu

Hægt er að velja mismunandi útfærslur eftir því hversu stóran hluta dagsins þið viljið hafa myndaðan. Hvort sem þið viljið fyrst og fremst eiga fallegar myndir frá athöfninni og af ykkur saman eða myndir frá undirbúningi, athöfn, brúðhjónamyndatöku og veislu, þá finnum við fyrirkomulag sem hentar ykkar brúðkaupi.

Hver brúðkaupsmyndataka er skipulögð í samráði við brúðhjónin og löguð að ykkar degi.

Fullunnar brúðkaupsmyndir

Myndirnar eru fullunnar og afhentar rafrænt í bæði prent- og skjáupplausn. Þær eru afhentar bæði í lit og svarthvítu, svo þið hafið úrval af myndum sem henta vel til að prenta, deila með fjölskyldu og vinum eða varðveita í ykkar eigin myndaalbúmi.

Ef þið eruð að leita að brúðkaupsljósmyndara sem leggur áherslu á einlægar, náttúrulegar og tímalausar brúðkaupsmyndir, þá væri mér ánægja að fá að vera með ykkur á þessum mikilvæga degi.

Next
Next

Meðgöngumyndatökur