Verðskrá

Ný verðskrá tók gildi 1. janúar 2026. Allar bókanir sem gerðar voru fyrir það haldast á verði miðað við pöntunardagsetningu.

Smellið hér til að lesa skilmála.

Að myndatöku lokinni færðu sendan tengil á sýnishornaalbúm þar sem myndirnar eru algjörlega óunnar. Þar velur þú þær myndir sem þú vilt og ég fer í að vinna þær. Sýnishorn eru ekki afhent fyrr en greitt hefur verið fyrir myndatökuna sjálfa.

Hefðbundin myndvinnsla felur í sér að fjarlægja sár/bólur/bletti/hor, leiðrétta liti og rétta myndir af. Aðra flóknari myndvinnslu þarf að meta í hverju tilfelli fyrir sig og kostar aukalega.

Myndum er skilað rafrænt bæði í prent- og skjáupplausn, í lit og svarthvítu. Þið sjáið svo sjálf um alla prentun og eru engar takmarkanir þar á.

Afgreiðslutími mynda er almennt allt að 3 vikur, miðað við þann dag sem val á myndum hefur verið staðfest.
Afgreiðslutími brúðkaupsmynda er allt að 4 vikur.