Nýburamyndataka
Fyrstu dagarnir og vikurnar með nýjum fjölskyldumeðlim líða ótrúlega hratt. Nýburamyndataka er falleg leið til að varðveita þessar fyrstu stundir – litlu fingurna, svipbrigðin, faðmlögin og tengslin sem verða til þegar fjölskyldan stækkar.
Ég legg áherslu á náttúrulegar, fallegar og tímalausar nýburamyndir. Myndatakan fer fram í rólegu og notalegu umhverfi þar sem við gefum okkur góðan tíma og látum hana taka mið af barninu og ykkur sem fjölskyldu.
Nýburamyndataka á ykkar forsendum
Það er engin þörf á að vera vön því að vera fyrir framan myndavél. Ég leiðbeini ykkur í gegnum myndatökuna og legg áherslu á að hún sé afslöppuð og notaleg fyrir alla.
Systkini eru að sjálfsögðu velkomin með í myndatökuna og það er upplagt að taka nokkrar fjölskyldumyndir í leiðinni.
Áherslan er ekki á fullkomna uppstillingu heldur á að fanga litla einstaklinginn, tengslin og þessa einstöku stund í lífi fjölskyldunnar.
Í stúdíóinu er ég með fjölbreytta aukahluti sem nýtast vel í allskonar uppstillingar og einnig vafninga í ýmsum litum. Ég get líka komið heim til ykkar en þá er fókusinn enn meira á ykkar umhverfi og tengsl við nýja fjölskyldumeðliminn.
Hvenær er best að fara í nýburamyndatöku?
Nýburamyndataka er oftast skipulögð á fyrstu vikum eftir fæðingu. Hvert barn er þó ólíkt og því er mikilvægt að hafa myndatökuna á þeim tíma sem hentar ykkur og barninu best.
Ef þið eigið von á barni er því gott að hafa samband með fyrirvara og ákveða myndatökuna í kringum áætlaðan fæðingardag. Það er þó aldrei of seint að hafa samband og ég legg mig fram við að koma öllum að ef ég mögulega get.
Myndir sem varðveita fyrstu minningarnar
Fyrstu stundirnar með nýja fjölskyldumeðlimnum eru minningar sem breytast hratt. Nýburamyndir verða því dýrmætar með tímanum – ekki aðeins fyrir ykkur heldur líka fyrir barnið þegar það verður eldra.
Ég legg áherslu á náttúrulega myndvinnslu og tímalausan stíl þannig að myndirnar verði falleg og tímalaus minning um þessa fyrstu daga.

